LITLA HANNYRÐABÓKIN
LITLA HANNYRÐABÓKIN
LITLA HANNYRÐABÓKIN
LITLA HANNYRÐABÓKIN
LITLA HANNYRÐABÓKIN
Rokkur Knit

LITLA HANNYRÐABÓKIN

Regular price 2.990 kr 0 kr

Litla hannyrðabókin

Bókin er ætluð hannyrðafólki sem prjónar og/eða heklar. Í bókinni eru ýmsir listar til að fylla út til að halda skipulagi yfir hvaða verkefni þið viljið framkvæma, hvernig þið framkvæmduð og einnig þau markmið sem þið setjið ykkur.

Aftast í bókinni eru nokkrar markmiðateikningar í anda „bullet journal“ sem ætlað er til að lita í með trélitum og þannig fylgjast með því sjónrænt þegar þið náið hannyrða markmiðum ykkar.

Bókin er 50 blaðsíður í stærð A5 með góðum pappír til að skrifa á og lita og með gormi til að auðvelda skrif í hana. Hentug stærð í hannyrðatöskuna.

Bókin er hönnuð af Helenu Sif Magnúsdóttur, eiganda Rokkur Knit.

Hægt er að sækja bókina í Mosfellsbæ eða fá hana heimsenda gegn gjaldi, sendingargjald er reiknað í greiðsluferli.


Deila þessari vöru


Meira úr þessu safni