HAMBURG opin dömupeysa
Hamburg opin dömupeysa
Peysan er prjónuð í hring, neðanfrá og upp. Prjónaðar eru 3 brugðnar lykkjur upp allan búkinn sem síðar eru saumaðar sitthvorumeginn þar sem sléttu og brugðnu lykkjurnar mætast. Síðan er klippt á milli saumanna og prjónaður listi yfir sauminn. Ef þið kjósið að prjóna peysuna fram og til baka þá passar mynstrið með því að byrja á réttu og næsta umferð er prjónuð brugðin til baka í staðinn fyrir slétt á réttu. Uppskriftin gerir ekki ráð fyrir því.
Garn: Aran Special with Wool 500,550(550,600)650,700 gr.
eða Drops Nepal 550,600(600,650)700,750 gr.
Prjónfesta: 18 lykkjur slétt á prjóna nr. 5 = 10 cm
Prjónastærð: 40-80 cm hringprjónar nr. 4,5 og 5 & ermaprjónar nr. 4,5 og 5
Annað: Prjónamerki, tölur, saumavél til að sauma niður lista og skæri.
Stærð: XS,S(M,L)XL,XXL
Tungumál: Íslenska
Rafræn uppskrift berst í tölvupósti þegar greiðsla hefur verið staðfest.